ÁTVAGLSFRÉTTIR!Margrét Viðarsdóttir
Jæja þá er degi númer tvö í hinu illræma átaki mínu lokið...og ég hef bara staðið mig eins og hetja
Lax og kjúklingabringa, salat,ávextir, prótíndrykkir og vatnslosandi allskonar hafa verið uppistaða þess sem inn um mínar "blóðrauðu varir sem mynduðu O"...(svo ég noti nú einhverjar setningar úr þeim viskubrunni er rauða serían ber með sér)
En já, með snilldarinnar lagni hefur mér tekist að tálga af mér svo mikið sem 1/2 kíló frá því ég bloggaði síðast!!!
En eins þolinmóð og geðgóð manneskja og ég er, þá vil ég trúa því að ég hafi nú alveg pottþétt bætt á mig kílói af massa bara í þessi tvö skipti sem ég sýndi listir mínar með pilates boltanum mínum....OG EKKI ORÐ UM ÞAÐ MEIR!!! En án alls gríns að þá er þetta spor í rétta átt...og innan skamms mun ég girða mig oní gallabuxurnar sem ég hef ekki farið í síðan í janúar!!! En ég sem sagt náði að sleikja af mér nokkur kíló í desember í fyrra og komst þá í þær
...var nú því miður ekki lengi að finna djúpsteikingarpott til að baða mig í og náði þessum kílóum á mig strax í janúar og nokkrum til viðbótar....Alltaf að græða sjáðu til
En lífið fyrir utan átakið er bara alveg búið að ganga sinn vanagang og hlussast ég á hverjum morgni með póstinn og dúlla mér svo með dætrum mínum eftir hádegi
Svo núna í kvöld kom hún Gógó og Margrét í brúnir til mín, og var það alveg vatnslosandi út af fyrir sig....það var svo gaman hjá okkur að við bókstaflega grenjuðum úr hlátri nánast allann tímann....
Alltaf gaman að fá þær í heimsókn...Laddi virkar þunglyndur við hliðina á þeim
En jæja...það þýðir ekki að hanga hér á veraldarvefnum langt fram eftir nóttu....hipja sig í sturtu og beint í rúmið....
Luv ya all.....Óskarósin

ÞEIR SEM BÚA Í HAMBORGARARÖSSUM EIGA EKKI AÐ HENDA VÖFFLUM!!!!Margrét Viðarsdóttir
Góða kvöldið Gæðingar
Í dag eru 126 dagar frá því að ég hætti að reykja...já ég er rosalega dugleg finnst mér....en það að hætta þessum ósóma hefur haft í för með sér allmörg aukakíló og er ég núna alveg komin með nóg af svoleiðis uppákomum!!!
Ég hef nú ákveðið að taka mig bara alveg heljarinnar taki og skila af mér þessum 8 ó svo indælu kílóum af hreinni ofátsfitu!!!!
Ég er núna 61 og hálft kíló og ætla að vera orðin 54 kíló um miðjann desember þegar Röggi kemur aftur heim...!!!
Já ég veit að þið eruð að fárast yfir því að 61 og hálft kíló sé nú ekki neitt...en þegar að beinaþyngdin er ekki meiri en hjá úrbeinuðum lambsskrokk að þá er þetta bara þónokkuð skal ég ykkur segja...ég er nú ekki talin mjög hávaxin og hef nú oft fengið að heyra það að éf ég væri eitthvað lægri að þá teldist ég hola..þannig að ég má nú ekki við einhverjum bútum af tólg utan á mig...það er ekki smart að vera einn og sextíu á hæð og rétt tæplega það á breidd...

En allavegana að þá ætla ég að blogga um það hvernig mér gengur þetta...og þið verðið að vera til friðs því að ég gæti orðið doldið stygg ef að það gengur ekki allt eins og ég ÆTLA mér...ég er nebblega ein af þessum einstaklega geðprúðu...þið vitið hvað ég á við!!
En ég skal í kjólhelvítið um jólin...og í miðri kreppu þá er þetta miklu ódýrara heldur en að fara að kaupa mér stærri föt!!!
En núna er til alveg hellingur af mér og ég vona að það verði minna af mér næst þegar ég blogga....(annað kvöld)
En hér hefst kúrinn....skál....Óskarósin
Jæja....Margrét Viðarsdóttir
Ég ætla að athuga hvort að ég nenni að vera með bloggsíðu í þetta skiptið....Margt hefur nú gerst síðan ég bloggaði síðast (á centralinu þá)!!!
Það eru búnir að koma páskar og sumar og haust og vetur og....ég er hætt að reykja og við keyptum okkur íbúð og það er komin "kreppa"....sko hvað ég er duglegur lítill bloggari....tók mér alveg rosalega langann matartíma þar

Það er enginn smáræðis snjór úti og það væri svo gaman að geta farið út með stelpurnar á snjóþotu...en nei...ekki hægt í þetta skiptið...ég er nýkomin úr aðgerð og má ekki alveg við því að hamast eitthvað

En um leið og ég má þá verða þoturnar teknar í gegn uppi í grænuklauf....alveg á hreinu sko

Ég er að fara að vinna á morgun, eftir 2 vikna veikindaleyfi...og omg hvað ég er spennt að fara út á meðal fólks...það veit sá sem búið hefur á þriðju hæð að þetta er ekki alveg í alfara leið og því ekki margt fólk sem maður hittir ef maður fer ekki út!!!
Það er svo stutt í jólin að maður er farin að fá smá álfafiðring...
get ekki beðið eftir að hrækja upp allskonar jóla glingri...þó það sé ekki nema bara til að gleðja Döggu....
en ég er alveg að segja ykkur að eftir mánuð mun jingle bells heyrast niður af svölunum hjá mér....og kanilkaffið verður keypt...þó að kaffi sé að verða munaðarvara á íslandi....En svona í alvöru...bara kaffi er farið að kosta svo mikið að það mætti halda að þetta sé allt malað úr baunum sem að hafa runnnið svo lipurt í gegnum meltingarveg egipskra katta!!! Í alvöru....þetta er fáránlega sjúkt orðið...daman sem var að afgreiða síðast þegar ég fór í búðina sagði að hún væri orðin svo hrikalega kvekkt á því að segja fólki hvað það ætti að borga því að fyrir 4-5 hluti væri fólk að borga mörg þúsund!!! Enda heyrir maður sko marga segja CRAP!!! ( það þýðir kreppa..)
En ég ætla nú ekki að hafa þetta neitt lengra í bili...enda afburðarleiðinleg bloggfærsla....blogga betur á morgun...þá hef ég vonandi eitthvað skemmtilegt að blogga um...þá verð ég líka búin að hitta einhverja sem að eru ekki 7 ára eða yngri...hahaha....
En ég kveð í bili......Óskarósin
